Senda inn efni

Innskráning eða Nýskráning til að senda inn grein.

Minnislisti höfunda

Til að senda inn grein eða efni í tímaritið þurfa höfundar að staðfesta eftirfarandi atriði. Greinar sem ekki standast þessar kröfur verða endursendar höfundum.
  • Greinin hefur ekki verið birt áður og er ekki í útgáfuferli hjá öðru tímariti.
  • Innsendu handriti ásamt titilsíðu er skilað sem Microsoft Word skjölum
  • Uppsetning á texta er í samræmi við kröfur sem koma fram í leiðbeiningum til höfunda.
  • Tenglar (DOI og vefslóðir) heimilda eru skráðir
  • Innsending handrita til nafnlausrar ritrýni skal innihalda:
    - *Handrit (Word skrá) ÁN ALLRA upplýsinga og eiginda um höfund(a) greinar
    - *Handrit (Word skrá) - MEÐ upplýsingum um höfund(a) greinar
    - þar með talið titilsíða þar sem fram koma nöfn, stutt ferilskrá og staða (Deild / Stofnun / Land) allra höfunda greinar

    Innsending rannsóknarpistla í opna rýni skal innihalda:
    - *Handrit (Word skrá) MEÐ upplýsingum um höfund(a) greinar
    - þar með talið nöfn og stöðu (Deild / Stofnun / Land) allra höfunda greinar

Leiðbeiningar til höfunda

Áður en kemur að skilum á greinum til tímaritsins eru höfundar beðnir um að kynna sér vel

  • siðareglur tímaritsins sem lesa má hér
  • markmið og áherslur tímaritsins sem lesa má hér 

Innsending á efni

Vinsamlega virðið eftirfarandi viðmið varðandi orðafjölda:
  • Greinar til ritrýni: 6-8000 orð
  • Rannsóknapistlar: 2-3000 orð
  • Annað efni: allt að 3000 orðum (samantektir frá ráðstefnum, bókadómar o.fl.)

Innsending til ritrýni skal innihalda:

  • Eiginlegt handrit MEÐ upplýsingum um höfnunda 
    • Eiginlegt handrit skal innihalda titilsíðu með upplýsingum um titil greinar, nöfn, starfstitil, starfsstöð allra höfunda, stuttan kynningartexta þeirra og ORCID-númer sem og netföng 
    • Handrit skal innihalda Útdrátt, Lykilorð og Heimildaskrá
  • Handrit ÁN upplýsinga um höfunda - titill: For Review
    • Handrit skal innihalda Útdrátt, Lykilorð og Heimildaskrá
    • Til að viðhalda nafnleynd skal við vísun í eigin verk vísa til þeirra í texta (Author/Höfundur, ÁR) og sleppa þeim tilvísunum í heimildaskrá 

Innsending til ritrýni skal Ekki sýna nöfn höfunda eða aðrar rekjanlegar tilvísanir eða upplýsingar

    • Tilvísanir í eigin höfundarverk skal sýna sem (Authors, YEAR) og þeirra verka skal ekki getið í heimildaskrá
    • Sleppið þökkum og upplýsingum um fjármögnun
    • Eyðið eigindum skjals (sjá að neðan í kafla um ritrýni)

Rannsóknapistlar

  • Rannsóknapistlar eru stuttir fræðilegir textar (1500-3000 orð) sem fjalla t.d. um hugmyndafræðilegar, aðferðafræðilegar eða aðrar fræðilega nálgun eða hugtök sem tengjast rannsóknum á ferðamálum á norðurslóðum.
    • Rannsóknapistlar geta byggt á rannsóknargögnum án þess að það sé forsenda birtinga.
    • Rannsóknapistlar sem birtast í FerNor þurfa að vera vel rökstuddir og efni þeirra að tengjast efnistökum tímaritsins.
    • Ágrip skulu ekki fylgja rannsóknapistlum heldur skal í pistli birta stutta samantekt (nokkrar setningar eða stutta málsgrein)
    • Umfang rannsóknapistla skal vera á bilinu 2-3000 orð í heildina, að meðtöldum töflum og tilvísunum.
  • Rannsóknapistlar eru rýndir í opnu ferli af ritstjórn FerNor.

 

Ábyrgð höfunda

Höfundar sem senda fræðigrein í tímaritið Ferðamál á norðurslóðum (FerNor) skulu tryggja eftirfarandi:

  • Fræðigrein skal vera upprunalegt verk höfunda og hefur ekki verið send öðrum tímaritum til birtingar
  • Aðeins þeir sem eiga veigamikinn þátt í undirbúningi, framkvæmd, túlkun rannsókna eða ritun greinar eða annars verks geta titlað sig sem höfunda að grein
  • Innsendingu skal fylgja yfirlýsing um framlag hvers höfundar
  • Sá höfundur sem tekur að sér samskipti við tímaritið ber ábyrgð á því að allir þeir sem taldir eru upp sem meðhöfundar séu það í raun og veru og hafi samþykkt handrit í lokaútgáfu áður en það var sent til útgáfu
  • Höfundar bera ábyrgð á því að farið sé að íslenskum persónuverndarlögum, þ.m.t. að leyfi sé fyrir öflun og meðferð gagna eins og við á
  • Höfundar eiga að vísa í öll verk sem hafa haft mótandi áhrif á rannsóknina
  • Hagræðing niðurstaðna eða vísvitandi fölsun er með öllu óheimil
  • Upplýsa skal um fjármögnun verkefna þar sem við á og mögulega hagsmuni sem liggja að baki rannsóknum
  • Birting myndefnis þar sem átt hefur við mynd að öðru leyti en því að stilla birtu, lit eða skerpu er með öllu óviðeigandi

Tungumál

Æskilegt er að ritrýndar greinar séu á ensku en einnig verður tekið við greinum á íslensku. Útdráttur á báðum tungumálum skal fylgja greinum sem skrifaðar eru á íslensku. Óritrýnt efni verður alla jafna birt á íslensku.

Nafnleynd höfunda við ritrýni

Fræðilegar greinar í Ferðamálum á norðurslóðum eru ritrýndar með gagnkvæmri leynd þar sem ritrýnar fá ekki upplýsingar um greinarhöfunda og greinarhöfundar fá ekki upplýsingar um ritrýna. Ritstjórn metur hvort grein falli innan efnissviðs tímaritsins og hvort hún sé tæk til ritrýni.

Mikilvægt er að innsent skjal geymi ekki upplýsingar sem um höfunda sem stefnt geti í hættu nafnleynd þeirra í ritrýniferli.

Höfundar skrá eigin upplýsingar eftir nýskráningu / innskráningu á vef tímaritsins þ.e. nafn, stöðu, starf og starfsferilságrip (bio). Þar skal greinum til ritrýni hlaðið upp sem textaskjali (Word).

Fræðigreinar sem sendar eru inn til FerNor eru ritrýndar með gagnkvæmri nafnleynd. Það þýðir að höfundar fá ekki upplýsingar um rýnendur og rýnendur ekki um höfunda.

Ritstjórn metur hvort grein falli að efnistökum tímaritsins og hvort hún sé tæk til ritrýni og síðar birtingar í tímaritinu.

Mikilvægt er að innsent skjal innihaldi ekki upplýsingar um höfund(a) sem stefnt gætu í hættu nafnleysi ritrýni.

Höfundur(ar) eiga að skrá upplýsingar sínar eftir skráningu / innskráningu á vefsíðu ArcTour tímaritsins, með t.d. nafni, tengingu og stuttri ævisögu. Greinar sem sendar eru til skoðunar ætti að hlaða upp sem textaskjali (Word).

ATHUGIÐ: Til að tryggja nafnleysi ritrýniferlisins er mikilvægt að nafn/nöfn höfunda(r) komi hvergi fram. Eiginnafni/-nöfnum höfnunda(r) skal því eyða úr áður en til innsendingar kemur, þar með talið innan texta eigi slíkt við sem og auðkenningum höfunda sem notuð eru í tilvísunum og neðanmálsgreinum. Í slíkum tilfellum má skipta nafni/nöfnum út fyrir t.d. [xxx].

ATH: Höfundur(ar) þurfa jafnframt að fjarlægja upplýsingar um eigindi skjals (upplýsingar um eiganda). Það er gert með eftirfarandi leiðum:

  • Microsoft Word fyrir Windows:
    • Farðu í Skrá
    • Veldu Upplýsingar
    • Smelltu á Efni (Issue)
    • Smelltu á Skoða skjal
    • Í Skjalaskoðunarglugganum veldu gátreitinn tegund falins efnis
    • Smelltu á Fjarlægja allt
    • Smelltu á Loka
    • Vistaðu skjalið
  • Microsoft Word fyrir MacOS:
    • Farðu í Verkfæri
    • Smelltu á Vernda skjal
    • Veldu Fjarlægja persónulegar upplýsingar fyrir þessa skrá á vistun
    • Smelltu á OK og vistaðu skrána

 

Uppsetning greina við skil

Uppsetning í útgáfu lýtur sniðmáti greina skv. stöðlum tímaritsins. Við skil á handritum skulu höfundar fylgja eftirfarandi leiðbeiningum

  • Textaskjal (Word) 
  • Lengd greina
    • Greinar til ritrýni 6-8000 orð (með útdrætti og heimildaskrá)
    • Rannsóknarpistlar 2-3000 orð
    • Annað efni að 3000 orðum (s.s. samantektir frá ráðstefnum, bókadómar o.fl.)
  • Myndir og töflur skulu sýndar á viðeigandi stað í grein. Ef birta skal ljósmyndir skal þeim einnig skilað í sérskjali (heiti vísi til númers skv. grein) til að tryggja lágmarksupplausn við útgáfu.
  • Ítarefni og athugasemdir höfunda skal skrá sem neðanmálsgreinar fremur en aftanmálsgreinar – því er þó beint til höfunda að lágmarka slíkt sem mest má vera
  • Tilvísanir og skráning heimilda skal fylgja APA-staðli (útg. 6 eða nýrri)
  • Uppsetning
    Innsendar greinar sem ætlaðar eru í ritrýni skulu vera á
    • Word formi,
    • skrifaðar í 12 pt. Calibri eða sambærilegri stafagerð
    • með tvöföldu línubili
    • með 2,5cm vinstri / 3cm hægri jaðri á síðu.
  • Greinar sem samþykktar eru til birtingar verða settar upp í sniðmát FerNor og sendar til samþykktar höfunda fyrir útgáfu.

Gjaldtaka

Ekki er tekið gjald fyrir birtingu greina.

Fræðigreinar

Fræðigrein - innsending til ritrýni

Innsending handrita til nafnlausrar ritrýni skal innihalda:
- *Handrit (Word skrá) ÁN ALLRA upplýsinga og eiginda um höfund(a) greinar
- *Titilskjal - MEÐ upplýsingum um höfund(a) greinar
- þar með talið nöfn og stöðu (Deild / Stofnun / Land) allra höfunda greinar

Viðmið orðafjölda: 6-8.000 orð í heild

Óritrýnt efni

Annað efni: allt að 3000 orðum (samantektir frá ráðstefnum, bókadómar o.fl.)

Rannsóknarpistill

Rannsóknarpistlar - innsending til ritrýni.

Æskilegur orðafjöldi: 2-3.000

Special Issue - Regenerative Tourism

Handrit ætluð sérhefti FerNor um nærandi ferðaþjónustu á norðurslóðum

Sérhefti - Heimskautasvæði

Handrit sent til birtingar í sérheftinu Making Polar Areas

Persónuvernd

Nöfn og netföng verða ekki notuð í öðrum tilgangi en að miðla upplýsingum er varða tímaritið. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila.