Um tímaritið
Markmið og áherslur
Ferðamál á norðurslóðum er vísindatímarit á sviði ferðamála, gefið út af Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF). Markmið þess er að skapa vandaðan vettvang fyrir þverfræðilega umfjöllun um ferðamál, ferðamennsku og ferðaþjónustu á norðurslóðum með það fyrir augum að auka fræðilega þekkingu og styrkja faglega umræðu. Hvatt er til framlags frá hinum ýmsu fræðasviðum þar sem nálgun er staðsett í samhengi ferðamála á norðurslóðum og fræða þeim tengdum.
Tímaritið Ferðamál á norðurslóðum tekur einnig við rannsóknarpostlum sem og óritrýndu efni eins og samantektum frá ráðstefnum, bókadómum, viðtölum, o.fl. sem varðar ferðaþjónustu og ferðamál á norðurslóðum.
Auk reglulegrar útgáfu tímaritsins Ferðamál á norðurslóðum verða einnig gefin út sérhefti sem snúa að ákveðnum þemum eða áherslum tengdum ferðamálum. Kallað er sérstaklega eftir greinum í sérhefti og lúta þau sérstakri ritstjórn í samráði við fasta ritstjórn tímaritsins.
Tímaritið Ferðamál á norðurslóðum er eingöngu rafrænt og opið er fyrir innsendingu greina allt árið um kring. Efni er birt jafnóðum og það er tilbúið. Um efni í sérheftum gilda ákveðnar útgáfudagsetningar sem eru kynntar sérstaklega.
Æskilegt er að ritrýndar greinar séu á ensku en einnig verður tekið við greinum á íslensku. Íslenskum greinum skal fylgja útdráttur á bæði íslensku og ensku. Óritrýnt efni verður jafnan birt á íslensku.
Ekki er tekið gjald fyrir birtingu greina.
Ritrýni
Fræðilegar greinar í Ferðamálum á norðurslóðum eru ritrýndar með gagnkvæmri leynd þar sem ritrýnar fá ekki upplýsingar um greinarhöfunda og greinarhöfundar fá ekki upplýsingar um ritrýna. Ritstjórn metur hvort grein falli innan efnissviðs tímaritsins og hvort hún sé tæk til ritrýni. Auk almennra krafna um fræðileg vinnubrögð, trausta röksemdafærslu og skýra framsetningu er ætlast til þess að höfundar fylgi reglum tímaritsins um frágang. Til að tryggja nafnleyd höfunda er mikilvægt að öll perónueinkenni höfunda (þ.m.t. eigindi skjals) séu fjarlægð áður en kemur að innsendingu.
Grein sem samþykkt er til ritrýni er send til a.m.k. tveggja sérfræðinga á viðkomandi sviði. Gert er ráð fyrir að höfundar fái svör varðandi birtingu eins fljótt og auðið er. Sé grein ekki hafnað hafa höfundar tækifæri til að lagfæra hana í samræmi við athugasemdir ritrýna. Endanleg ákvörðun um birtingu er í höndum ritstjórnar.
Rannsóknapistlar
Rannsóknapistlar sem birtast í FerNor eru rýndir í opnu ferli af ritstjórn tímaritsins.
Óritrýnt efni
Ritstjórn metur og tekur ákvörðun um birtingu á óritrýndu efni. Ef þurfa þykir getur ritstjórn óskað eftir áliti sérfróðra aðila á viðkomandi fræðasviði.
Opinn aðgangur
Tímaritið er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons BY 4.0. Efni þess er til frjálsrar dreifingar án endurgjalds fyrir notendur og stofnanir. Notendum er heimilt að lesa, afrita, dreifa, prenta, leita í eða tengja við fullan texta greina sem birtast í veftímaritinu og án þess að afla sér fyrirfram heimildar frá útgefanda eða höfundi. Þó skal ávallt fylgja almennum reglum um vísun til heimilda.
Leyfi
Greinar í Ferðamálum á norðurslóðum eru gefnar út undir leyfinu CC BY 4.0 (Creative Commons Attribution 4.0 International License).
Höfundaréttur
Höfundur eða höfundar eiga ótakmarkaðan höfundarrétt á greinum sem birtast í tímaritinu.
Útgefandi
Tímaritið Ferðamál á norðurslóðum er gefið út af Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF). Útgáfan er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Hólum, Háskólans á Akureyri og Ferðamálastofu. Hlutverk RMF er að styðja við starf ritstjórnar.