Til ritrýna
Framlag ritrýna
Ritrýni hjálpar ritstjórn við að taka ritstjórnarlegar ákvarðanir. Í samskiptum við höfunda nýtast niðurstöður ritrýni til að aðstoða höfunda við að betrumbæta texta. Ritrýnar fjalla um kosti og galla handrits og taka afstöðu til innihalds og frágangs texta. Ritrýnar skulu vera vakandi fyrir siðferðislegum álitamálum og bera þau undir ritstjórn eftir því sem við á. Þetta á við um atriði eins og t.d. að benda á heimildir sem ritrýnar telja að vanti í handriti höfunda, eða ef þeir verða varir við augljós líkindi á milli viðkomandi handrits og efnis sem hefur verið birt áður.
Trúnaður
Ritrýnum ber að fara með handrit í ritrýningu sem trúnaðarmál. Ekki skal sýna eða ræða efni handritsins nema með leyfi ritstjóra.
Ritrýnum er óheimilt að nota eða vísa í óútgefið efni sem þeim hefur verið falið að meta til birtingar.
Hlutlægni og hagsmunaárekstrar
Ritrýnar skulu ávallt gæta hlutlægni og byggja gagnrýni skýrum rökum. Athugasemdir um persónu eða eiginleika höfundar eða lítilsvirðandi athugasemdir eru með öllu óviðeigandi.
Ritrýnar skulu ráðfæra sig við ritstjórn ef þeir telja sig óhæfa til að meta vísindalegt gildi handrita (t.d. vegna skyldleika eða annarra hagsmunaárekstra). Ef ritrýnar telja sig ekki hafa tíma til að skila niðurstöðum á tilsettum tíma skulu þeir segja sig frá verkinu eins fljótt og auðið er eða óska eftir viðbótartíma.