Communication and trust in multicultural Arctic teamwork (Icelandic only)

Authors

DOI:

https://doi.org/10.33112/arctour.4.1.2

Keywords:

norðurslóðaferðaþjónusta, menningarhæfni, fjölmenningarleg teymi, árstíðasveiflur, Lappland

Abstract

Í eftirfarandi pistli er sjónum beint að þátttöku nemenda og kennara í Arctic Leadership Challenge, blönduðu stuttu námi (Blended Intensive Programme - BIP) sem haldið var í Rovaniemi í Norður Finnlandi haustið 2025 á vegum Erasmus+. Í verkefninu unnu þátttakendur í fjölþjóðlegum teymumí nánu samstarfi við stjórnendur hjá finnska ferðaþjónustufyrirtækinu Apukka Resort. Pistillinn byggir á ígrundun um hvernig verkefnið varpar ljósi á samvinnu, samskipti og traust í fjölmenningarlegu vinnuumhverfi. Ennfremur eru viðtöl við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki á dreifbýlum svæðum nýtt til samanburðar. Fjallað er um hvernig teymisvinna nemenda endurómar fjölbreytileika starfsmannahópa í Lapplandi, hvernig kenningar um menningarhæfni (Cultural Intelligence) og Lewis-líkanið styðja skilning á því hvernig samvinna og samskipti mótast í fjölþjóðlegu vinnuumhverfi. Reynslan er sett í samhengi við lykiláskoranir norðurslóðaferðaþjónustu, árstíðasveiflur, húsnæðisskort, vinnuálag og starfsánægju. Sérstök áhersla er lögð á samskipti og traust sem lykilþætti í því að halda úti ábyrgu og sjálfbæru rekstrarumhverfi ferðaþjónustu á norðurslóðum. Í lokaorðum er rætt hvernig slíkar námslotur geta stutt við markmið norðurslóðaferðaþjónustu um ábyrgan vöxt, þekkingaruppbyggingu og eflingu næstu kynslóðar starfsfólks og leiðtoga á norðurslóðum.

Downloads

Download data is not yet available.

References

Earley, P. C., & Mosakowski, E. (2004). Cultural intelligence. Harvard Business Review, 82(10), 139–146.

Lewis, R., 2018. When cultures collide: Leading across cultures. Hachette UK.

Published

06.03.2026

How to Cite

Karlsdóttir, V. (2026). Communication and trust in multicultural Arctic teamwork (Icelandic only). Journal of Arctic Tourism, 4(1), 18–22. https://doi.org/10.33112/arctour.4.1.2

Issue

Section

Research notes